Talsmenn sjómanna, björgunarsveitar og fyrirtækja í sjávarútvegi í Grindavík hafa sent frá sér áskorun í tilefni af sjóslysinu við Vestfirði í sumar þegar fiskibáturinn Jón Hákon BA sökk og einn maður fórst. Í áskoruninni segir m.a.:

Vegna þessa hörmulega slyss sem varð 7. júlí 2015 þegar fiskibáturinn Jón Hákon BA 60 sökki viljum við hvetja þá sem koma að þessu máli að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að finna orsök slyssins og hví öryggisbúnaður virkaði ekki til þess að svona slys endurtaki sig ekki og sjómenn búi ekki við falskt öryggi.

f.h.Sjómanna og vélstjórafélags Grindavíkur / Einar Hannes Harðarson

f.h.Þorbjarnar / Eiríkur Tómason

f.h. Vísis / Pétur Pálsson

f.h. Stakkavíkur / Hermann Ólafsson

f.h. Einhamars Seafood / Stefán Kristjánsson

f.h.Björgunarsveitarinnar Þorbjörns / Steinar Þór Kristinsson