Reykjavíkurborg stefnir að því að fækka bensínstöðvum í borginni um helming og í staðinn komi íbúðauppbygging, hverfisverslanir eða önnur starfsemi á lóðunum. Þetta verða meginlínur og samningsmarkmið í viðræðum við olíufélögin að því er kemur fram í samþykktum frá fundi borgarráðs fyrr í dag.

Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson, greinir frá þessu í færslu á Facebook í dag.

„Skil­greind­ir hafa verið hvat­ar fyr­ir olíu­fé­lög­in til að hraða þess­ari umbreyt­ingu í sam­vinnu við borg­ina í græna átt. Lofts­lags­áætl­un borg­ar­inn­ar ger­ir ráð fyr­ir að stöðvun­um verði fækkað um helm­ing fyr­ir árið 2030 en nú brá svo við að borg­ar­ráði leist svo vel á upp­leggið að það sam­einaðist um að herða á mark­miðinu og stefna á að ná því fyr­ir árið 2025,“ segir ennfrekar í færslu Dags á Facebook.