Börkur NK hélt vestur fyrir land á laugardagskvöld til veiða á íslenskri sumargotssíld.

Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað að lítið sé að frétta og lítið að sjá.

„Við höfum verið djúpt út af Faxaflóa, um 100 mílur vestur af Garðskaga, og erum komnir með 200 tonn í þremur holum. Hér hafa skip verið að fá upp í 170 tonn í holi og það er það allra mesta. Hér er heldur dauft hljóð í mönnum sem stendur, það er enginn kraftur í þessu. Núna er hálfgerð bræla, en það ætti að verða í lagi með veðrið þegar líður á daginn,“ sagði Hálfdan að lokum