Enn eru fiskar að drepast í stórum stíl úr þeim hópi laxa sem voru í kvíum Arnarlax sem urðu fyrir tjóni í óveðri 11. febrúar. Umfang laxadauðans vegna atviksins verður ekki ljóst fyrr en eftir nokkra mánuði. Gera má ráð fyrir talsverðum afföllum á þeim tíma. Afföll fiska í umræddri kví í Tálknafirði voru í upphafi 53.110 fiskar af 194.259.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun sem fór vestur til eftirlits á starfsstöðvum Arnarlax í Hringsdal í Arnarfirði og Laugardal í Tálknafirði 27. febrúar.

Það er niðurstaða Matvælastofnunar að Arnarlax brást rétt við tjóni á sjókvíunum í kjölfar óveðursins.

Þar segir jafnframt: „Krufning á dauðum fiskum sem fluttir höfðu verið úr laskaðri sjókví Arnarlax í Tálknafirði leiddi í ljós einkenni sem benda til blóðeitrunar af völdum sárasýkinga. Við flutninginn úr laskaðri sjókví í aðrar kvíar skaddast fiskurinn á roði, sporði og uggum og verður berskjaldaður fyrir sýklum á roði og í umhverfi hans. Við lágan sjávarhita verða slíkar sýkingar verri.“

Ekki er talið að hægt hefði verið að koma í veg fyrir tjónið og voru viðbrögð við hæfi miðað við aðstæður. Viðbragðsáætlun Arnarlax er í samræmi við reglugerð um fiskeldi en fyrirtækið hefur ekki skrifleg veðurfarsleg viðmið um hvenær heimilt er að koma með bát að eldiskví. Matvælastofnun krefst útbóta á því. Geta Arnarlax til að fjarlægja og eyða dauðum fiski á hefðbundin hátt var nægjanleg vegna atvikanna.