Stjórn Síldarvinnslunnar í Neskaupstað ákvað í árslok 1963 að hefja útgerð og var þá samþykkt að festa kaup á 264 tonna fiskiskipi sem smíðað var í Austur Þýskalandi. Ráðgert var að afhenda skipið eigandanum í nóvember 1964. Hið nýja skip Síldarvinnslunnar fékk nafnið Barði og þegar það var í reynslusiglingu á Elbufljóti 20. desember 1964 henti það óhapp að flutningaskip sigldi á það. Skemmdist Barði mikið við ásiglinguna en engin alvarleg meiðsl urðu á mönnum.

Verulegan tíma tók að lagfæra skemmdirnar og því kom Barði ekki til heimahafnar í Neskaupstað í fyrsta sinn fyrr en 5. mars 1965. Í októbermánuði 1964 hafði stjórn Síldarvinnslunnar ákveðið að láta smíða annað skip fyrir fyrirtækið. Um var að ræða systurskip Barða sem hlaut nafnið Bjartur. Bjartur kom nýr til Neskaupstaðar 14. maí 1965. Bæði skipin voru sérstaklega smíðuð með síldveiðar í huga enda síldarævintýri í hámarki á Austfjörðum.

Þetta er hluti frásagnar á vef Síldarvinnslunnar, en þar segir að í tilefni þess að fyrirtækið verði 60 ára hinn 11. desember nk. muni birtast pistlar um sögu þess á heimasíðunni af og til út árið.

Sjá nánar HÉR.