Línubátar frá Neskaupstað og hafa verið að afla vel – en fimm slíkir eru gerðir út frá Neskaupstað. Allt eru þetta aðkomubátar og hafa sumir þeirra komið á hverju vori undanfarin ár.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Rúnar Óli Birgisson, starfsmaður Norðfjarðarhafnar, segir í fréttinni að fyrsti báturinn hafi hafið róðra í lok maí þetta árið.

„Nú róa héðan fimm línubátar og það á eftir að bætast í þann flota. Í fyrra voru þessir bátar 11 talsins seinni hluta sumars. Bátarnir eru farnir að koma fyrr á vorin og fara seinna en áður þannig að allt bendir til að héðan sé gott að gera þá út stóran hluta ársins. Í fyrra hætti síðasti línubáturinn róðrum héðan í desember. Bátarnir sem róa héðan fast núna koma frá Hornafirði, Fáskrúðsfirði og Suðurnesjum. Stærsti báturinn landaði hér 25 tonnum tvo daga í röð í síðustu viku og algengt er að minni bátarnir séu að koma með 8-10 tonn að landi. Þetta eru aflatölur fyrir endurvigtun,“ segir Rúnar Óli.

Aflinn hefur verið góður frá því í maí. Samkvæmt upplýsingum frá Norðfjarðarhöfn róa nú 10 strandveiðibátar frá Neskaupstað, þar af er einn bátur frá Eskifirði og annar frá Fáskrúðsfirði. Mun strandveiðibátunum væntanlega eiga eftir að fjölga verulega þegar kemur lengra fram á sumarið, segir að lokum í fréttinni.