Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málstofu um loftslagsbreytingar og yfirráð yfir hafsvæðum í HR á morgun, föstudaginn 30. september kl. 12-13 í stofu M103.

Loftslagsbreytingar hafa í för með sér hækkun sjávarmáls og sjávarrof. Afleiðingarnar eru m.a. að strandlengjur taka breytingum og eyjur og sker sökkva í sæ. Tilkall ríkja til hafsvæða veltur á strandlengjum þeirra og því geta loftslagsbreytingar haft áhrif á réttarstöðu strandríkja, þ.m.t. Íslands. Á málstofunni munu Snjólaug Árnadóttir og Svava Pétursdóttur fjalla um þessi mál. Annars vegar út frá sjónarhóli afmörkunar hafsvæða á milli nágrannaríkja og hins vegar svokallaðra beinna grunnlína en það eru þær línur sem víðátta hafsvæða margra strandríkja er mæld út frá.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Dagskrá:

Dr. Bjarni Már Magnússon dósent við lagadeild HR og Fulbright Arctic Initiative fræðimaður setur málstofuna og stýrir henni.

Snjólaug Árnadóttir doktorsnemi við lagadeild Edinborgarháskóla. - Áhrif loftslagsbreytinga á afmörkun hafsvæða.

Svava Pétursdóttir lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun. - Áhrif hækkunar sjávarmáls á grunnlínur Íslands.

Almennar umræður og spurningar úr sal.