Veiðarnar hjá Vestmannaey og Bergey – skipa Bergs Hugins, dótturfélags Síldarvinnslunnar, hafa gengið vel síðustu vikurnar. Eins og undanfarin ár hafa skipin lagt stund á veiðar út af Suðausturlandi og Austfjörðum á þessum árstíma. Aflanum er svo ýmist landað fyrir austan eða í Eyjum.

Frá þessu segir á heimasíðu fyrirtækisins, en þar er rætt við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra.

„Það er haustbragur á veiðum skipanna og það hefur aflast vel. Vestmannaey landaði fullfermi á Seyðisfirði í gær og var uppistaða aflans þorskur og ýsa. Vestmannaey hóf veiðar í túrnum út af Suðausturlandi en færði sig svo á Austfjarðamið. Bergey er á miðunum út af Suðausturlandinu og er að veiða ýsu, kola og ufsa. Gert er ráð fyrir að hún landi í Vestmannaeyjum á morgun. Við erum kátir með veiðarnar og verðin hafa verið að þokast upp á við,“ segir Arnar.