Nýlegur rannsóknarleiðangur Hafrannsóknastofnunar sýnir sterka stöðu rækjustofnsins við Snæfellsnes og mældist stofnvísitalan yfir meðallagi.

Í ljósi þessa hefur sjávarútvegsráðuneytið ákveðið að heildarafli á rækju verði 820 tonn á komandi vertíð sem hefst 1. maí og er það í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Aflamark í rækju við Snæfellsnes fiskveiðiárið 2014/2015 var 600 tonn. Á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015 veiddust um 500 tonn af rækju við Snæfellsnes.