Hvað er betra en að fá þá sem kunna til verka að sýna hvernig gott verk er unnið. Matís og Landssamband smábátaeigenda (LS) blása til samkeppni meðal sjómanna um að sýna í máli og myndum hvað þarf til svo fyrsta flokks afli berist að landi. Þetta kemur fram á vef Matís .

Samfélagsmiðlar verða nýttir til að sýna frá störfum sjómanna og munu sjómennirnir sjálfir sjá um myndir og texta.

Í lok hvers mánaðar, maí, júní, júlí og ágúst verður einn sjómaður valinn sem þykir hafa skilað besta og jákvæðasta efninu. Eingöngu verður lagt mat á myndirnar og textann og mun það vera í höndum Matís og LS að velja úr aðsendum og birtum myndum.

Markmið verkefnisins er að auka vitund um mikilvægi góðrar aflameðferðar og hversu miklu máli það skiptir að stunda vönduð vinnubrögð. Nauðsynlegt er að sýna neytendum með jákvæðum hætti að vel sé að verki staðið og að unnið sé með ábyrgum hætti að sjálfbærri nýtingu okkar sameiginlegu auðlindar.

Myndir eða stutt myndbönd mega vera af nánast hverju sem er varðandi sjómennsku, veiðar og aflameðferð. Við viljum þó fyrst og fremst sjá myndir sem fanga jákvæða mynd aflameðferðar og ekki er vitlaust að velta því fyrir sér hvað það er sem gerir fiskinn þinn þann besta á markaðnum og með hvað hætti þú getur sýnt það í máli og myndum.

Svo er alls ekki bannað að vera frumleg(ur) og skemmtileg(ur) í myndavali og gefa ímyndunaraflinu svolítið lausan taum því það verður til mikils að vinna.