„Við erum bæði að leita með landgrunnsbrúninni fyrir norðan land og svo eru tvö skip að leita á grunnslóð líka,“ segir Birkir Bárðarson fiskifræðingur á Hafró. „Skipin eru komin á svæðið vestur af Sléttu og það hefur ekki mikið magn sést þarna ennþá. Árni Friðriksson kastaði á loðnu norðvestur af Sléttu og það var kynþroska loðna, en magnið var ekki mikið.“

Þar með dvína ört þær veiku vonir sem enn lifðu um loðnuveiði í vetur. Þessi yfirferð fyrir norðan land átti að vera úrslitatilraunin og henni lýkur væntanlega núna fyrir helgi.

„Ætli við látum ekki gott heita að því búnu,“ sagði Birkir, en tók þó fram að ákvörðun um framhald verði ekki tekin fyrr en yfirferðinni fyrir norðan land er lokið.

„Það var samt helsta vonin að eitthvað væri gengið inn á svæðið fyrir norðan land núna.“

Auk Árna Friðrikssonar eru Polar Amaroq og Halldór Ásgrímsson á svæðinu norður og norðvestur af Melrakkasléttu. Þá hafa tvö norsk skip tekið þátt í leitinni, Roaldsen og Åkeroy. Roaldsen er enn hér við land en Åkeroy er haldin á brott.

[email protected]