Síðastliðinn sunnudag var búið að tilkynna stjórnvöldum í Grænlandi um 12.000 tonna makrílafla í grænlenskri lögsögu frá upphafi vertíðar. Aflahæstur var Polar Amaroq með tæplega 1.600 tonn, Ilivileq og Næraberg hið færeyska höfðu fengið rúm 1.400 tonn hvort skip og Polar Princess var með rúm 1.100 tonn.