Nýtt veiðivottorðakerfi hefur verið tekið upp hjá Fiskistofu til að bregðast við breyttum innflutningsreglum í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofunni . Í tilkynningunni eru notendur hvattir til að flytja sig yfir í nýja kerfið þótt hið gamla verði rekið áfram um sinn.

„Eins og mörgum útflytjendum er kunnugt þá taka í gildi nýjar innflutningsreglur í Bandaríkjunum frá og með áramótum,“ segir í tilkynningu Fiskistofu. „Þorsk- og  rækjuafurðir eru einu íslensku útflutningsvörurnar sem falla undir þær reglur.  Nýja vottorðakerfið gefur kost á vottorði  vegna útflutnings til Bandaríkjanna sem ætlað er að uppfylla stóran hluta af þeim kröfum sem gerðar eru en það er ekki hægt í gamla vottorðakerfinu.“

Vakin er sérstök athygli á að  vottorðið fyrir Bandaríkjamarkað í nýja kerfinu skal eingöngu nota fyrir þorsk- og rækjuafurðir. Útflytjendur eru sagðir þurfa að yfirfara hjá sér hvort þeir þurfi frá áramótum að gefa fyllri upplýsingar en til þessa  um útflutning sinn á þorski og eða rækjum.

Fiskistofa vekur einnig sérstaka athygli á að þeir sem  hafa  aðgang að heilbrigðisvottorðakerfi MAST sem Fiskistofa hýsir með gamla veiðivottorðakerfinu eiga ekki að fara inn í nýja kerfið.