Þeir Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfus og Ingólfur Snorrason, einn eiganda Landeldis ehf., skrifuðu  undir nýjan leigusamning á þriðjudag sem kveður á um úthlutun þriggja lóða við Laxabraut í Þorlákshöfn þar sem fyrirtækið hyggst koma upp einu stærsta landeldi á Íslandi.

Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Hafnarfrétta.

Þar kemur fram að um er að ræða rúmlega 183 þúsund fermetra lóð og er áformað að verklegar framkvæmdir hefjist eigi síðar en vorið 2020.

Í fyrsta áfanga hyggst Landeldi ehf. koma upp 2.500 tonna árs framleiðslu en í beinu framhaldi ætlar fyrirtækið að ná 5.000 tonna framleiðslu af fullvaxta laxi á ári hverju.  Ef um væri að ræða fyrirtæki í bolfiski með 5.000 tonna kvóta þá væri um ræða eina stærstu útgerð á landinu og því ljóst að áhrif þessara framkvæmda munu hafa mikil áhrif á atvinnulífið í Þorlákshöfn. Fram hefur komið að 5.000 tonna landeldi geti skapað 50 bein störf og um 25 önnur i tengdum greinum. Miðað við áformin verða því störf í eldi mun stærri þáttur í atvinnulífi sveitarfélagsins en nú er, segir í frétt Hafnarfrétta.

„Þorlákshöfn er einstaklega heppileg til landeldis, bæði hvað varðar seiða- og fulleldi.  Ástæðan er sú að landrými er hér mikið, ofgnótt af fersku vatni, góður jarðsjór, mikill jarðvarmi og síðast en ekki síst þá er hér öflug og góð útflutningshöfn.  Þar við bætist rík hefð og þekking mannauðsins á öllu sem tengist vinnslu sjávarafurða“, er haft eftir Elliða Vignissyni bæjarstjóra í fréttinni.

Elliði segir að hann telji ríkar líkur á því að landeldi eigi eftir að verða sterkt hér á landi og bætast þar við fiskeldi í sjókvíum.

„Það er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að hafa í huga að í dag kemur rúmlega helmingur alls sjávarfangs í heiminum úr eldi en innan við helmingur vegna veiða á villtum stofnum.  Ef við ætlum ekki að dragast aftur úr þá þurfum við að stíga fastar fram í þessari vaxandi grein.“