„Mikil umræða hefur verið meðal sjómanna um góða veiði á þorski ár eftir ár.  Yfirstandandi fiskveiðiár virðist slá öll fyrri met.  Takmarkaðar aflaheimildir koma ekki í veg fyrir að hægt er að tala um landburð dag eftir dag,“ segir í frétt á vef Landssambands smábátaeigenda.

„Sögur sagðar að það hafi tekið 1 klukkustund og 8 mínútur að ná skammtinum í strandveiðum, togað hafi verið í 10 mínútur og aflinn 20 tonn.  Þessi aðilar aldrei lent í öðru eins,“ segir ennfremur.

Líkt og undanfarin ár reyna útgerðaraðilar að dreifa veiðinni, taka ekki of mikið á stuttum tíma. Á vef LS er skoðuð dreifing þorskveiða á fyrstu 9 mánuði fiskveiðiársins, september - maí. Í flestum mánuðum er aflaaukning frá fyrra ári enda er kvótinn 10% meiri nú en á síðasta fiskveiðiári.

Sjá nánar HÉR.