Á BETT, sem er ein stærsta árlega sýningin í tengslum við upplýsingatækni í skólastarfi í Evrópu vakti íslenska útgáfan af Microbit verkefninu mikla athygli eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu.

„Fulltrúar verkefnisins frá Menntamálastofnun og Krakka-RÚV kynntu Microbit verkefnið sem hófst síðastliðið haust en um er að ræða forritanlegar smátölvur sem nemendur í 6. og 7. bekk í grunnskólum landsins hafa fengið til að læra forritun,“ segir í tilkynningunni.

„Framgangur Microbit verkefnisins hér á landi hefur vakið mikla athygli í öðrum löndum Evrópu og hafa margar fyrirspurnir borist varðandi fyrirkomulag og árangur.

10 þúsund nemendur fengið tölvur

Þátttaka í verkefninu hefur verið góð og hafa tæplega 10.000 nemendur þegar fengið Microbit tölvur.

Í tengslum við verkefnið var efnt til forritunarleikanna, Kóðinn 1.0, sem er hýst á vefsvæði RÚV þar sem nemendur geta glímt við vikulegar áskoranir, sent inn lausnir og sótt fræðsluefni.

Microbit verkefnið sem er stærsta einstaka aðgerðin sem ráðist hefur verið í til að efla forritunarkennslu á Íslandi er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Menntamálastofnunar, RÚV, Samtaka iðnaðarins og fyrirtækja sem samtökunum tengjast.“

Haft er eftir Kristján Þór Júlíussyni, mennta- og menningarmálaráðherra að forritunarkennsla í grunnskólum sé mikilvæg. „...það er ánægjulegt að kynning verkefnisins fari nú fram á BETT, í því fellst mikil viðurkenning fyrir verkefnið."

Forritun varanlega í grunnskólana

„Allir sem að verkefninu koma eru á einu máli um mikilvægi þess og viðtökur hafa sýnt okkur að nemendur eru tilbúnir að takast á við forritun og tengd viðfangsefni,“ er jafnframt haft eftir Almari Guðmundssyni framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

„Nú þurfa allir hagsmunaaðilar að leggjast á eitt við að koma forritun á dagskrá í grunnskólum landsins á varanlega hátt.

Þar eru áskoranirnar fyrst og fremst að koma forritun með formlegri og viðameiri hætti í námsskrá grunnskóla og skoða sérstaklega með hvaða hætti þarf að þróa menntun og undirbúning kennara sem takast á sama tíma við nýjar áskoranir.“