Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. maí 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum þorski og karfa um 5 % . Einnig var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa um 1,5 % . Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. maí 2016.

Allar verðtöflur