Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við tínslu á krækling (bláskel) og annarra skeltegunda við landið. Alexandrium og Dinophysis þörungar  hafa greinst undanfarið í sjósýnum sem hafa verið tekin í Hvalfirði, Breiðafirði,  Mjóafirði og Steingrímsfirði.  Útbreiðsla þessara þörunga annars staðar við landið er ekki þekkt. Alexandrium þörungar geta valdið PSP eitrun og Dinophysis þörungar DSP eitrun. Nánari upplýsingar um einkenni eru hér.

Sú þumalfingurregla sem er þekkt að ekki skuli tína skel til neyslu í mánaðarheitum sem eru ekki með r er því í fullu gildi.

Matvælastofnun tekur fram að kræklingur sem fari á markað sæti ströngu eftirliti og fari ekki á markað fyrr en sýnt hafi verið fram á að magn þörungaeiturs sé innan þeirra marka sem sett hafi verið.

Hægt er að fylgjast með niðurstöðum þörungavöktunar á heimasíðum Matvælastofnunar og Hafrannsóknarstofnunar.