Skipverjarnir 25 á Júlíusi Geirmundssyni munu yfirgefa skipið í dag, en togarinn liggur við bryggju á Ísafirði. Umdæmislæknir sóttvarna hefur gefið leyfi fyrir þessu með skilyrðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Eins og greint hefur verið frá kom í ljós við sýnatöku að stór hluti áhafnarinnar var smitaður af Covid - 19. Þetta varð ljóst eftir að sýni voru tekin úr allri áhöfninni þegar skipið kom til hafnar  til olíutöku á Ísafirði um liðna helgi. Veiðiferðin hafði þá staðið í þrjár vikur og nokkrir í áhöfn verið með flensueinkenni.

Í tilkynningu heilbrigðisstofnunarinnar segir að niðurstöður sýnatöku frá í gær bárust í hádeginu í dag. Níu skipverjar hafa jafnað sig á veikindunum, eru með mótefni og því frjálsir ferða sinna. Þrettán eru smitaðir og þurfa að vera í einangrun áfram. Þrír eru hvorki smitaðir né með mótefni og þurfa því að sæta sóttkví.

Af þessum fara fimm í farsóttarhús í nágrenni Ísafjarðar sem sett verður upp af þessu tilefni. Aðrir fara til síns heima eða í íbúðir á eigin vegum víða um land. Einn verður eftir um borð í skipinu.

Vettvangsstjórn og aðgerðastjórn hefur verið virkjuð við uppsetningu farsóttahússins, flutning á fólki og annað sem tengist málinu. Samráð hefur verið haft við sóttvarnalækni, Sjúkratryggingar Íslands, Rauða kross Íslands og fleiri.