Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa sent frá sér tilkynningu vegna umræðu um starfsemi Samherja í Afríku í kjölfar frétta Kveiks og Stundarinnar þar sem fyrirtækið er vænt um spillingu og mútur.

Segir í tilkynningunni „að það hefur ætíð verið afstaða samtakanna að allir félagsmenn skuli fara að lögum og eftir reglum. Gildir þá einu hvar viðkomandi starfsemi fer fram, á Íslandi eða í útlöndum. Hvað varðar framkomnar ásakanir á hendur Samherja hf., þá eru þær í eðli sínu alvarlegar og það er fyrirtækisins að bregðast við þeim. Ljóst er að mál af þessu tagi getur haft áhrif á orðspor íslensks sjávarútvegs og stöðu á alþjóðlegum markaði. Því er brýnt að málið verði rannsakað og hið rétta komi fram. Það er allra hagur, ekki síst þeirra sem bornir eru þungum sökum.“

Undir tilkynninguna ritar Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.