Heildarafli ársins 2020 var rúm milljón tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu . Það er 3% minna en árið 2019. Rúmlega helmingur aflans var uppsjávarafli, þar af var kolmunni 244.000 tonn, makríll 152.000 tonn og síld 134.000 tonn.

Engin loðna veiddist árin 2019 og 2020. Botnfiskafli árið 2020 var 463.000 tonn, þar af var þorskur 277.000 tonn en ýsa, ufsi og karfi rúm 50.000 tonn hver tegund.

Magn uppsjávarafla var nær óbreytt miðað við árið 2019 og magn botnfiskafla dróst saman um 4% miðað við fyrra ár. Flatfiskafli var nær óbeyttur frá fyrra ári, eða 23.000 tonn. Skelfiskafli dróst saman um helming og var tæplega 5.000 tonn.

Aflamagn í desember 2020 voru tæplega 74.000 tonn og jókst um 16% miðað við desember 2019. Uppsjávarafli jókst úr tæpum 34.000 tonnum í desember 2019 í 41.000 tonn í desember 2020 sem er 22% magnaukning í desembermánuði. Botnfiskafli var um 32.000 tonn og þar af var þorskur rúm 18.000 tonn, um 10% meira en í desember 2019.

Magnvísitala landaðs afla í desember er 61,8 sem bendir til þess að aflaverðmæti verði 10,8% meira en í desember 2019.

Upplýsingar um fiskafla byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands, útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.