Hægagangur  er á útgerð ísfisktogaranna Gullvers NS, Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE vegna kórónuveirufaraldursins, segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Gullver landaði 105 tonnum af blönduðum afla á Seyðisfirði síðastliðinn mánudag og hélt ekki til veiða á ný fyrr en á miðvikudagskvöld. Bæði Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu fullfermi í Vestmannaeyjum á mánudag. Bergey hélt strax til veiða á ný og landaði rúmlega 50 tonnum á miðvikudag en Vestmannaey hélt kyrru fyrir í landi. Gert er ráð fyrir að bæði skipin haldi síðan til veiða annað kvöld.

Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins, sem gerir út Vestmannaey og Bergey, segist í viðtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar vonast til þess að nú fari að lifna yfir fisksölu erlendis og þá verði hægt að sækja meira og nýta skipin með eðlilegum hætti.