Fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) gagnrýndi á fundi í Genf í gær að Evrópusambandsríkin legðu tolla á íslenskan fisk á meðan önnur ríki fengju tollfrjálsan aðgang fyrir sínar sjávarafurðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnvalda.

Reglubundin endurskoðun á viðskiptastefnu Evrópusambandsins á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Genf er lokið. Í ræðu sem Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands hjá WTO flutti á fundi í gær undirstrikaði hann náið og víðfeðmt viðskiptasamband Íslands og Evrópusambandsins í gegnum EES-. Í því ljósi skyti hins vegar skökku við tollar sem ESB leggur á fjölda tegunda íslenskra sjávarafurða, ekki síst vegna þess að nokkur ríki fengju tollfrjálsan aðgang fyrir sínar sjávarafurðir á Evrópumarkað. Harald benti jafnframt á að íslenskur sjávarútvegur væri vistvænn og sjálfbær og þar væru engir ríkistyrkir til staðar sem ýttu undir ofveiði.

Þar segir að Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur tekið þessi mál upp reglulega á fundum með ráðamönnum Evrópusambandsins og aðildarríkjum þess.

Um þessar mundir stendur íslenska utanríkisþjónustan fyrir upplýsingarherferð gagnvart aðildarríkjum ESB með það að markmiði að koma á viðræðum um tollfrelsi á sjávarafurðir frá Íslandi til ESB.