Sýni frá Reyðarfirði sem bárust Hafrannsóknastofnun í gær sýnir að þörungablóminn sem vart hefur orðið austur á fjörðum, og ekki síst á Seyðisfirði, er af völdum skoruþörungsins Ceratium lineatum (sjá mynd). Blómi þessarar tegundar er ekki alveg óþekkt fyrirbæri hér við land og sást til dæmis töluvert af henni í Breiðafirði í ágúst síðastliðnum.

Þetta kemur fram í frétt Hafrannsóknastofnunar.

Þar segir að Ceratium tegundir eru þekktar víða um heim fyrir að fjölga sér hratt við ákveðnar aðstæður og valda þannig miklum blóma, svo miklum að þörungabreiðurnar verða sjáanlegar á yfirborði sjávar. Þó að þörungarnir sjálfir myndi ekki eitur og séu þannig ekki eiturþörungar, geta svo miklir blómar valdið álagi á vistkerfið og jafnvel orsakað fiskdauða. Það er vegna þess að þörungarnir geta sest í tálkn fiskanna og þá er það einkum fjöldi þeirra í hverjum lítra sjávar sem veldur álaginu.

Við Ísland er vel þekkt að blómi svifþörunga getur einnig orðið að haustlagi þegar lagskiptingin við yfirborð fer að brotna upp og næringarefni berast við þá blöndun til yfirborðslagsins þar sem birtu nýtur. Ekki eru til nýjar umhverfismælingar úr Reyðarfirði en athuganir voru gerðar í Fáskrúðsfirði um miðjan ágúst, þá var þar skýr lagskipting við yfirborð. Blómans er vart víða við Austfirði þannig að þau skilyrði sem ýta undir svo stórfelldan blóma svifþörunga eru ekki einungis bundin við Reyðarfjörð.