Ísfisktogararnir Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE hafa verið að fiska vel að undanförnu. Frá því segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að skipin hafa lagt verulega áherslu á ýsuveiði og hafa þau fyrst og fremst veitt í Lónsbugtinni.

Gullver NS landaði á Seyðisfirði sl. mánudag og var afli skipsins 107 tonn. Vestmannaey landaði fullfermi í Neskaupstað sl. mánudag.

Heimasíðan sló á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar, skipstjóra á Vestmannaey, og spurði út í aflabrögðin.

„Það verður ekki annað sagt en að aflabrögð hafi verið góð að undanförnu. Við erum nú á leiðinni til Eyja með góðan ýsuafla sem fékkst í Lónsbugtinni. Við stoppuðum einungis í sólarhring á miðunum þannig að það er ekki hægt að kvarta,“ segir Birgir Þór.