Stjórn Brims samþykkti á fundi sínum í gær samninga um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum í Hafnarfirði, Fiskvinnslunni Kambi og Grábrók. Tilkynnt var um samninginn 21. október. Viðskiptin eru háð samþykki hluthafafundar Brims, Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila, segir í frétt frá fyrirtækinu

Þar segir ennfremur:

Fiskvinnslan Kambur gerir út krókabátinn Kristján HF 100 sem var smíðaður í Trefjum hf. í Hafnarfirði á síðasta ári og er búinn öllum nýjasta tækjabúnaði til veiða og aflameðferðar. Honum fylgir um 2.000 tonna krókaaflamark að mestu í þorski. Þá rekur fyrirtækið tæknivædda fiskvinnslu í eigin húsnæði við Óseyrarbraut í Hafnarfirði sem er búin margvíslegum hátæknibúnaði m.a. nýrri vinnslulínu og vatnsskurðarvél frá Völku hf. sem var tekin í notkun á síðasta ári. Kaupverðið nemur 2.3 milljörðum króna og verður greitt að hluta með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félagsins og nema um 1% af heildarhlutafé Brims að verðmæti um 835 milljónir króna. Grábrók ehf. gerir út krókabátinn Steinunni HF 108 sem var smíðaður árið 2007. Honum fylgir um 850 tonna krókaflamark að mestu í þorski. Kaupverðið nemur 772 milljónum króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félaganna eru um 4,5 milljarðar.

„Tilgangur kaupanna er að styrkja Brim sem alhliða fyrirtæki í sjávarútvegi. Félagið bætir nú við sig þorskveiðiheimildum, tæknivæddum vinnslueiningum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda samkeppni í vinnslu sjávarafurða. Með þessum viðskiptum fer Brim yfir lögbundið kvótaþak í krókaaflamarki og hefur félagið lögum samkvæmt 6 mánuði til að gera ráðstafanir sem koma félaginu undir það þak,“ segir í fréttinni.

Í annarri frétt frá fyrirtækinu segir að heildarafkoma Brims jókst um ríflega 135% á þriðja ársfjórðungi frá sama tíma fyrir ári; fór hagnaður félagsins úr 8,2 milljónum evra í tæplega 19,4 milljónir evra.

Það samsvarar um 2,7 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, en ef horft er hagnaðinn án þessara liða nemur hann 17,8 milljónum evra, eða tæplega 2,5 milljörðum króna, sem er þá tæplega 118% aukning frá 8,2 milljarða hagnaði félagsins á þriðja ársfjórðungi 2018.