Uppsjávarskip Brims, Svanur ER, kom til hafnar á Vopnafirði um miðjan dag í gær með um 1.890 tonn af loðnu. Aflinn fékkst í fimm holum norðaustur af Langanesi. Þetta er stór og falleg loðna, rúmlega 40 stykki í kílóinu, og átulaus, að sögn Hjalta Einarssonar, skipstjóra á Svani.

Hann segir í frétt Brims að aðal veiðisvæðið hefur verið norðaustur af Langanesi síðustu daga en einnig hefur verið veiði sunnar.

„Þessi loðna virðist vera á austur eða suð-austurleið en við vitum að það er loðna hér norðvestar og eins austar en þar hefur verið þrálát bræla marga síðustu daga. Engar fréttir hafa þó borist um loðnu sunnarlega út af Austfjörðum.”

Hjalti segir að fyrst til að byrja með hafi loðnan veiðst meðan birtu naut en nú virðist besta veiðin vera yfir blánóttina.

„Loðnan heldur sig á 70 til 80 metra dýpi í myrkrinu. Við höfum skemmst togað í fjóra tíma og förum helst ekki yfir 12 tímana. Stærðin á loðnunni hefur verið mjög góð. Við höfum mest verið að veiða stóra loðnu, um 40 stykki í kílóinu, en svo getur þetta sveiflast örlítið milli túra. Hið sama á við um átuna. Nú er loðnan, sem við erum með í tönkum, alveg átulaus en í sumum túrum er örlítil áta í loðnunni,” segir Hjalti en hann segir mörg skip nú vera á miðunum. Auk íslenskra skipa eru þar norsk skip og fjögur grænlensk skip. Færeysk skip séu þó enn ekki byrjuð á veiðum.