Nú er unnið að uppsetningu nýs vigtunarbúnaðar í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Nýi búnaðurinn vigtar afla uppsjávarskipanna strax og hann kemur á land, áður en hann fer inn á flokkara.

Frá þessu er sagt á heimasíðu fyrirtækisins.

Þar segir að aðferðafræðin við vigtunina er sambærileg því sem tíðkast víða erlendis, til dæmis í Noregi, Danmörku og Færeyjum. Búnaðurinn er framleiddur af Marel og danska fyrirtækinu Hillerslev og um er að ræða 100 milljóna króna fjárfestingu. Uppsetning búnaðarins er langt komin en hann verður tilbúinn til notkunar þegar makrílvertíð hefst um mánaðamótin júní-júlí.

Jón Már Jónsson, yfirmaður landvinnslu hjá Síldarvinnslunni, segir í viðtali við heimasíðuna að hér sé um allmikinn búnað að ræða.

„Með tilkomu þessa nýja vigtunarbúnaður verður fiskiðjuverið eina uppsjávarvinnslan á landinu sem vigtar allan afla áður en vinnsluferill hefst, en flestar vinnslur byggja á afurðavigtun. Búnaðurinn er mjög vandaður og höfum við fulla trú á að hann muni virka vel. Með tilkomu þessa nýja búnaðar er unnt að dæla fisknum í land með meiri sjó en ella og það minnkar álagið á fiskinum í dælingunni og fer því betur með hann. Búnaðurinn mun því leiða af sér aukin framleiðslugæði,“ segir Jón Már.