Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) sendu rétt í þessu frá sér tilkynningu vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar sem kynnt var í morgun. Stóru tíðindin þar eru verulegur samdráttur í ráðlögðum þorskafla, eins og Fiskifréttir sögðu frá í morgun. SFS segir tíðindin þungbær en mælast hins vegar til þess að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar verði fylgt.

Í tilkynningu SFS, þar sem Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri, heldur á penna, segir jafnframt:

Mikill árangur hefur náðst á umliðnum 12 árum í uppbyggingu þorskstofnsins. Veiðar hafa verið stundaðar með sjálfbærum hætti og afli takmarkaður á forsendum varúðarleiðar og vísindalegrar ráðgjafar. Þrátt fyrir að tekist hafi að byggja upp sterkan viðmiðunarstofn, þá leiða stöku slakir árgangar til þess að sveiflur verða óhjákvæmilegar. Þá telur Hafrannsóknastofnun jafnframt að stærð stofnsins hafi verið ofmetin á umliðnum árum og við því verði að bregðast.

Öflugar og vandaðar hafrannsóknir eru grunnforsenda þess að unnt sé að skapa verðmæti úr fiskveiðiauðlind. SFS hafa um langa hríð lýst áhyggjum af stöðu hafrannsókna hér á landi. Breytt umhverfisskilyrði í hafi og auknar kröfur á mörkuðum hafa síst dregið úr þessum áhyggjum. Sú niðurstaða, sem kynnt var í dag, er staðfesting þess að slíkar áhyggjur eru réttmætar og brýnt er að bæta úr.

Fyrirtæki í sjávarútvegi munu þurfa að bregðast við fyrirvaralausum tekjusamdrætti og ákvarðanir sem taka þarf verða ekki léttvægar. Ljóst má vera að frestun á nauðsynlegum aðgerðum, til að tryggja sjálfbærni, væri skammgóður vermir og skaðlegur. Vandanum yrði þá ýtt inn í framtíð og hætt er við að hann færi fljótt vaxandi. Í stuðningi atvinnugreinarinnar við hina vísindalegu ráðgjöf felst því mikilvæg áhersla á langtímahagsmuni, segir í tilkynningunni.