Hafrannsóknastofnun ráðleggur að humarafli ársins 2020 verði ekki meiri en 214 tonn svo fylgjast megi með stærðarsamsetningu og dreifingu stofnsins.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni í dag.

Jafnframt leggur stofnunin til að allar humarveiðar verði bannaðar í Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar uppvaxandi humri. Til að minnka álag á humarslóð ráðleggur Hafrannsóknastofnun til að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi.

Í frétt Hafró segir að stofnstærð humars í stofnmælingu 2019 lækkaði um 20% frá árinu 2016. Á sama tíma hefur veiðihlutfall minnkað úr 1.9% í 0.4%.

Þéttleiki humarholna við Ísland (0.07 holur/m2) mælist nú með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf um.

Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.