Sjórannsókna- og síldarleiðangur hófst í gær á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Í leiðangrinum verða gerðar mælingar á hita og seltu sjávar á rúmlega 70 stöðum umhverfis landið ásamt því að taka sýni til rannsókna á efnafræði sjávarins, m.a. súrnun sjávar. Þessar rannsóknir eru hluti af langtímavöktun á umhverfisskilyrðum í hafinu við Ísland.

Þetta kemur fram í frétt frá Hafrannsóknastofnun.

Mælisniðin eru staðsett þannig að mælt er í þeim sjógerðum sem finnast umhverfis landið og þau ná yfir landgrunnið og fram yfir landgrunnsbrún. Botndýpi á stöðvunum er þannig frá 25 metrum til 1.830 metra.

Í seinni hluta leiðangursins verða að auki gerðar rannsóknir á íslenska sumargotssíldarstofninum. Þar er fylgst með stærð og árgangaskipan stofnsins með bergmálsmælingum og sýnatöku. Þá er ástand síldarinnar metið með tillit til Ichthyophonus sýkingar sem hefur herjað á stofninn síðan 2008. Rannsóknasvæði þessa leiðangurs nær allt frá Austurmiðum að Reykjanesi en sá hluti stofnsins sem hefur haft vetursetu vestan við landið verður mældur í mars. Bergmálsmælingar á fullorðna hluta síldarstofnsins og aflagögn leggja grunn að stofnmati og veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir sumargotssíld.

Samfara síldarleitinni verður gerð talning, skráning og myndataka á hvölum eins og aðstæður leyfa. Þessar rannsóknir eru m.a. liður í doktorsverkefni við Háskóla Íslands sem beinist að dreifingu og fæðuatferli háhyrninga.

Hægt að fylgjast með gangi leiðangursins og sjá þá staði þar sem mælingar eru gerðar, á skip.hafro.is.