Hoyvíkursamningurinn, fríverslunarsamningur Íslands og Færeyja, fellur að óbreyttu úr gildi nú um áramótin. Færeyjar hafa sagt samningnum upp.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, hittust í Kaupmannahöfn í gær og ræddu þar framtíð samningsins.

„Andrúmsloftið var jákvætt á fundi utanríkisráðherranna,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu . Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er sagður hafa áréttað að Hoyvíkursamningurinn hafi reynst bæði Færeyingum og Íslendingum vel. Því yrði að kanna til þrautar hvort forsendur væru fyrir Færeyinga að draga uppsögnina til baka.

„Hoyvíkursamningurinn hefur verið undirstaða vaxandi efnahagssamstarfs milli Íslendinga og Færeyinga og ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að við séum tilbúin til að gera okkar til að viðhalda honum. Eftir fund okkar Jenis av Rana í dag er ég bjartsýnni á að það takist,“ er haft eftir Guðlaugi Þór.