Þorlákur Halldórsson er nýr formaður Landssambands smábátaeigenda. Hann tekur við af Axel Helgasyni sem gegnt hefur starfinu undanfarin þrjú ár.

Þorlákur var einn í kjöri á aðalfundi LS síðastliðinn föstudag og „hlaut hann rússneska kosningu“, segir á vef LS . Hann var varaformaður LS árin 2016 og 2017.

Þorlákur er sjómaður í Grindavík og hefur setið í stjórn Reykjaness, félags smábátaeigenda á Reykjanesi.