Varðskipið Þór er til taks í Ísafjarðardjúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið undanfarna daga. Þá eru þyrlur Landhelgisgæslunnar sömuleiðis til taks í Reykjavík.

Eins og gefur að skilja er lítil skipaumferð á Vestfjörðum. Fjögur skip eru undir Grænuhlíð og eitt tankskip er á leið fyrir Hornbjarg og fer suður með Vestfjörðum. Engin skipaumferð er á miðunum norður af landinu en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fylgist vel með skipaumferð umhverfis landið allt.