Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Orkunnar, hefur jafnframt tekið við starfi forstjóra Samkaupa, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur hlutverki staðgengils forstjóra síðustu mánuði, mun nú einblína á fyrra starf sem framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni Samkaupa.

Auður tók í sumar við starfi forstjóra Dranga, nýstofnaðs móðurfélag Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Hún hefur verið forstjóri Orkunnar síðustu þrjú ár og mun áfram sinna því starfi. Þar með leiðir hún umbreytingar í rekstri félaganna og skipan eigna hjá Dröngum.

„Samruni Samkaupa og félaga á neytendamarkaði í eigu Dranga hefur gengið vel. Samkaup á öflugan og tryggan viðskiptavinahóp og markmið okkar er að styrkja stöðu fyrirtækisins enn frekar og efla þjónustu við viðskiptavini,“ segir Auður Daníelsdóttir.

„Neytendamarkaðurinn er í stöðugri þróun, bæði hvað varðar stafrænar lausnir og aðra þjónustu til viðskiptavina. Við í Samkaupum hlökkum til að takast á við þær áskoranir, en stefna okkar er að veita einfalda og góða þjónustu þar sem upplifun viðskiptavina er í fyrirrúmi.“