Gagnaversfyrirtækið atNorth lauk nýverið samningum við tvo stóra erlenda viðskiptavini um umtalsverða stækkun í gagnaverum fyrirtækisins á Íslandi.
Annar þeirra varðar stækkun skýjaþjónustu Crusoe í gagnaveri atNorth í Reykjanesbæ, en það er með stærstu gagnaverum sinnar gerðar á Norðurlöndum. Áætluð fjárfesting tengd þessari stækkun nemur um 32 milljörðum króna og fellur að mestu leyti til árið 2026, að því er segir í tilkynningu frá atNorth.
Þá var greint í gær frá raforkusamningi Landsvirkjunar og atNorth til fimm ára um kaup gagnaversins á Akureyri á 12 MW forgangsorku frá og með síðari hluta næsta árs.
„Gríðarlega aukin fjárfesting í vexti og uppbyggingu starfsemi atNorth á Íslandi, sér í lagi í Reykjanesbæ og á Akureyri, byggir á traustum langtímasamningum við öfluga viðskiptavini sem tryggja okkur stöðugan vöxt næstu ár. Fjöldi starfsmanna á Íslandi hefur einnig aukist verulega og eru þeir nú um 100 talsins. Við sjáum fyrir okkur vatnaskil á næsta ári þegar sú mikla fjárfesting í innviðum og mannauði sem ráðist hefur verið í fer að skila sér í arðbærum rekstri,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.
Efnahagsreikningurinn þrefaldast
Í ársreikningi fyrir 2024 kemur fram að fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) hafi verið 192,4 milljónir dala, samanborið við 30,3 milljónir dala 2023, sem hefur í för með sér þreföldun á efnahagsreikningi félagsins. Upphæðin samsvarar tæplega 23,4 milljörðum króna samanborið við 3,7 milljarða króna árið áður.
Áður hefur komið fram að áætluð heildarfjárfesting atNorth á Íslandi fyrir 2024-2025 verði um 41 milljarðar króna.
„Vöxtur atNorth á Íslandi síðustu ár hefur falið í sér fjárfestingu í innviðum, mannauði og ferlum, sem tímabundið hefur haft áhrif á afkomu félagsins.“
atNorth tapaði 11,5 milljónum dala árið 2024, eða sem nemur 1,5 milljörðum króna, samanborið við 6,3 milljónir dala árið áður. EBITDA fór úr 8,3 milljónum dala 2023 í 2,3 milljónir dala á síðasta ári.
Á yfirstandandi ári gerir atNorth ráð fyrir jákvæðri EBITDA afkomu og áframhaldandi rekstrarbata á næsta ári.
Alls rekur atNorth átta gagnaver á Norðurlöndum, en þar af eru þrjú á Íslandi, í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og á Akureyri. Tvö til viðbótar eru svo í smíðum í Danmörku og Finnlandi. Starfsmenn atNorth eru rúmlega 200, þar af helmingurinn á Íslandi.