Hið Íslenska Reðasafn ehf., sem rekur samnefnt safn á Hafnartorgi, hagnaðist um 145 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 138 milljóna hagnað árið 2023.

Stjórn félagsins lagði til að greiddur yrði út hagnaður að fjárhæð 120 milljónir í ár, að því er segir í ársreikningi félagsins. Til samanburðar greiddi élagið út 100 milljónir í fyrra.

Tekjur Reðasafnsins jukust um 5,7% milli ára og námu 487 milljónum króna í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) fór úr 168 milljónum í 179 milljónir milli ára. Ársverk voru 12 í fyrra.

Reðasafnið flutti á Hafnartorg árið 2020 eftir að hafa verið á Laugavegi 116 í nærri áratug. Safnið var þar áður rekið á Húsavík en starfsemin var færð í bæinn að frumkvæði Hjartar Gísla Sigurðssonar, syni stofnandans Sigurðar Hjartarsonar, sem tók við safninu árið 2011.

Safnið samanstendur af yfir 300 sýningargripum frá 120 dýrategundum, að því er segir á heimasíðu safnsins.

Eignir félagsins voru bókfærðar á 253 milljónir króna og eigið fé var 197 milljónir í lok síðasta árs. Hjörtur Gísli Sigurðsson reðurfræðingur er aðaleigandi félagsins með 80% hlut.