Ný stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna var kjörin á aukaaðalfundi sambandsins sem haldinn var þriðjudaginn 5. apríl. Sjö nýjar konur taka sæti í aðalstjórn og átta í varastjórn. Þá var Vala Pálsdóttir, kjörin formaður Landssambandsins.

Vala starfaði um árabil á RÚV og sem forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Íslandsbanka. Vala er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk meistaragráðu í alþjóðamarkaðssamskiptum frá Emerson College í Boston í ágúst 2016.

Vala hefur lengi starfað í flokknum, hún var kosningastjóri Ólafar Nordal í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðastliðið haust og starfaði með Ólöfu fram yfir alþingiskosningarnar. Stjórnin hefur þegar tekið til starfa og mun sitja fram að næsta aðalfundi að ári.

Auk Völu vöru kjörnar í aðalstjórn:

  • Áslaug J. Jensdóttir, Ísafirði
  • Bergþóra Þórhallsdóttir, Akureyri
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, Neskaupsstað
  • Gauja Hálfdánardóttir, Kópavogi
  • Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Reykjavík
  • Ingibjörg Guðmundsdóttir, Reykjavík
  • Íris Róbertsdóttir, Vestmannaeyjum
  • Jóhanna S. Pálsdóttir, Reykjavík
  • Lilja Birgisdóttir, Reykjavík
  • Nanna Kristín Tryggvadóttir, Kópavogi
  • Sigurrós Þorgrímsdóttir, Kópavogi
  • Sirrý Hallgrímsdóttir, Reykjavík
  • Svava Þórhildur Hjaltalín, Akureyri

Varastjórn:

  • Arndís Kristjánsdóttir, Reykjavík
  • Ásta Roth, Reykjavík
  • Ásthildur Sturludóttir, Vesturbyggð
  • Björg Fenger, Garðabæ
  • Elsa Dóra Grétarsdóttir, Reykjavík
  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hafnarfirði
  • Halldóra Björk Jónsdóttir, Garðabæ
  • Helga Guðný Sigurðardóttir, Kópavogi
  • Hulda Guðmunda Óskarsdóttir, Reykjavík
  • Jóhanna Hallgrímsdóttir, Reyðarfirði
  • Laufey Sif Lárusdóttir, Hveragerði
  • Margrét Björnsdóttir, Kópavogi
  • Margrét Kristín Sigurðardóttir, Garðabæ
  • Sjöfn Þórðardóttir, Seltjarnarnesi