Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, hefur ráðið Dagbjart Gunnar Lúðvíksson sem aðstoðarmann sinn. Hann hefur þegar hafið störf, að því er kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Fyrir starfar Jón Steindór Valdimarsson sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra.

Dagbjartur starfaði síðast á laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins en hefur komið víða við áður, þ.m.t. sem aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar, aðstoðarkennari við lagadeild Háskóla Íslands og verkamaður hjá Veitum.

Dagbjartur lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 með áherslu á samningarétt, alþjóðarétt og félagarétt.

Dagbjartur er uppalinn á Blönduósi og hefur fjölbreytta reynslu af félagsstörfum, meðal annars sem varaformaður Orators, félags laganema við HÍ, og formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Þá tók Dagbjartur sæti á Alþingi sem varaþingmaður Viðreisnar árið 2022.