Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu að því er kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Óskar hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2005, en sem fjármálastjóri frá 2011. Áður vann hann hjá SPRON, Bear Stearns (USA) og Landsbankanum.

Hann mun láta af störfum þann 1. október næstkomandi og verður forstjóra innan handar þar til ráðið hefur verið í starfið.

„Það hefur verið sönn ánægja að starfa hjá Símanum í gegnum mikla umbreytingartíma undanfarin ár. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð og hlakka til að fylgjast með áframhaldandi sókn félagsins,“ segir Óskar Hauksson, fráfarandi fjármálastjóri Símans.

„Eðli málsins samkvæmt stendur margt upp úr, en yfirburða samstarfsfólk ber þar hæst. Ég er þeim öllum þakklátur fyrir frábært samstarf og veit að Síminn er í góðum höndum.“

„Fjármál Símans hafa verið í traustum höndum Óskars í rúmlega fjórtán ár. Eins og fjárfestar þekkja hefur sá tími einkennst af stöðugleika, ábyrgð og vel ígrunduðum ákvörðunum í rekstrinum,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans.

„Ég vil þakka Óskari fyrir sitt framlag til félagsins og frábært samstarf síðustu misseri. Það verður missir af honum hjá Símanum, en við óskum honum öll góðs gengis í næstu verkefnum.“