Reykjavíkurborg hefur samið við Götubita ehf. um rekstur almenningsmarkaðar í Kolaportinu til næstu fimm ára. Auglýst var eftir varanlegum rekstraraðilum og bárust sex tilboð, en tilboð Götubita ehf. þótti best.

Borgarráð samþykkti drög að leigusamningi í dag og verður samningurinn tímabundinn til fimm ára með þriggja mánaða uppsagnarfresti á báða bóga. Mánaðarleiga verður 4.250.000 krónur.

Í tilkynningu á vef borgarinnar segir að Róbert Aron Magnússon, sem hefur tekið virkan þátt í matar- og pop up viðburðum á Íslandi undir formerkjum Götubita ehf., og Einar Örn Einarsson, annan stofnenda Serrano á Íslandi, taki við rekstrinum.

Borgin auglýsti í vor eftir varanlegum rekstraraðila að almenningsmarkaðnum að því gefnu að samningar næðust við ríkið um áframhaldandi húsaleigusamning á húsnæðinu, sem nú liggur fyrir.

Matsnefnd fór yfir tilboð sem bárust og var leiguverð metið til 25% stiga og aðrir matsþættir til 75% stiga. Aðrir matsþættir voru til að mynda farsæl reynsla af sambærilegum verkefnum, fjölbreytt vöruúrval á breiðu verðbili, svæði undir flóamarkað og viðburðasvæði. Þá var horft til þess að áætluð starfsemi í húsnæðinu yrði góð viðbót við framboð á verslun og þjónustu sem fyrir er í miðbæ Reykjavíkur, að því er segir í tilkynningunni.

Götubiti ehf. skilaði hæsta leigutilboði auk þess sem matsnefnd mat tillögu þeirra, það er Róberts Arons og Einars Arnar, til flestra stiga.

Lagt verður upp með tvo til þrjá veitingastaði, kaffihús og bar, leiksvæði fyrir börn innandyra, matvöruverslun, matvörumarkað og endurbætt rými fyrir leigutaka svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa aðilar á bakvið til að mynda Extraloppuna, Matarmarkað Íslands, Húrra Reykjavík og Iceland Airwaves sýnt áhuga á starfsemi í húsinu.

„Lagt er upp með að Kolaportið verði þróað sem fjölbreyttur og lifandi markaður þar sem listir, matur og markaðsmenning fléttist saman og skapi miðstöð mannlífs í miðborginni. Ætlunin er að höfða jafnt til íbúa sem ferðamanna og skapa markað þar sem fólk komi ekki aðeins til að versla heldur til að skoða, hitta aðra, kynnast nýjum menningarheimum og upplifa eitthvað nýtt og spennandi í hverri heimsókn.

Þeir Róbert Aron og Einar Örn hyggjast byggja á arfleifð Kolaportsins sem markaðar, en þróa áfram til dæmis með sveigjanlegri opnunartíma og fjölbreyttri dagskrá. Þá ætla þeir að leggja áherslu á að Kolaportið verði vettvangur fyrir götulist,“ segir tilkynningu borgarinnar.