Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings breytti horfum um lánshæfi ríkissjóðs úr stöðugum í jákvæðar á föstudaginn og staðfesti um leið „A“ lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.
Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu að jákvæðar horfur endurspegli sterkari stöðu opinberra fjármála.
„Gert er ráð fyrir að skuldir hins opinbera lækki verulega á árinu 2025 eftir vel heppnað uppgjör á skuldbindingum Íbúðalánasjóðs og sölu á hlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka.
Áfram fjölgar stoðum í atvinnulífinu, með áherslu á verðmætar atvinnugreinar, svo sem lyfjaiðnað, upplýsinga- og samskiptatækni og líftækni. Gnægð endurnýjanlegrar orku og samkeppnishæft orkuverð hafa laðað að sér fjárfestingar í orkufrekum gagnaverum. Þá eru miklir möguleikar í fiskeldi þar sem Ísland hefur samkeppnisforskot á heimsvísu.“
Ráðuneytið segir að aukin trú á verulegri og viðvarandi lækkun skuldahlutfalls ríkissjóðs, áframhaldandi kröftugur vöxtur og vísbendingar um frekari fjölbreytni í efnahagslífinu sem dregur úr áhættu Íslands gagnvart ytri áföllum, gæti leitt til hærri lánshæfiseinkunnar.
Aftur á móti gæti veruleg hækkun skuldahlutfallsins, t.d. vegna langvarandi slökunar í ríkisfjármálum eða alvarlegs efnahagsáfalls, sem gæti til að mynda komið til vegna verulegs samdráttar í heimshagkerfinu, leitt til lægri lánshæfiseinkunnar.