Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Einingarverksmiðjunnar ehf. Hún tekur við af Sigurbirni Óla Ágústssyni sem hefur leitt verksmiðjuna síðastliðin 28 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu. Hún mun taka við stjórnartaumum um miðjan febrúar og verður Sigurbjörn eigendum og stjórnendum til ráðgjafar fram eftir árinu.
Einingaverksmiðjan flytur um mitt ár í nýtt og stærra verksmiðjuhúsnæði sem er verið að reisa við Koparhellu í Hafnarfirði. Auk þess verður stór hluti framleiðslubúnaðar verksmiðjunnar endurnýjaður og uppfærður. Þar mun gefast tækifæri til að stórauka framleiðslugetu verksmiðjunnar til að anna aukinni eftirspurn eftir vörum félagsins, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Guðbjörg Sæunn kemur frá Veitum, hún var ráðin sem forstöðumaður fráveitu Veitna árið 2019 með skýran fókus á að innleiða stefnuáætlun og auka skilvirkni. Hún tók síðan við nýju sviði „Framtíðarsýn og rekstur" í mars 2020 í breyttu skipulagi fyrirtækisins með fókus á að auka skilvirkni í fjárfestingum og rekstrarkostnaði með stöðugum umbótum.
Guðbjörg Sæunn útskrifaðist með BS próf í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og með M.Sc próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2012. Að námi loknu hóf Guðbjörg störf á framleiðslusviði Össurar, fyrst sem ferilseigandi á CNC renniverkstæðinu þar til hún tók við öryggis- og umbótasviði framleiðslu og síðar starfaði hún sem framleiðslustjóri Sílikondeildar.