Hampiðjan hefur skrifað undir samning um kaup á fyrirtækinu International Rope Braid (IRB) en það fyrirtæki er staðsett á Gold Coast rétt fyrir sunnan Brisbane á austurströnd Ástralíu. Gert er ráð fyrir að rekstur IRB komi inn í samstæðureikning Hampiðjunnar frá 1. ágúst.
IRB var stofnað 2005 eða fyrir um 20 árum síðan. Stofnendur og eigendur IRB eru hjónin Dave og Suzy Allen og þau munu selja allan sinn hlut en styðja við yfirtökuferlið næstu mánuðina til að tryggja góða yfirfæslu á starfseminni.
IRB sérhæfir sig í að flétta kápur utan um ýmsar gerðir af ofurtógum og framleiðslu á slíkum tógum fyrir margs konar viðskiptavini en mest er salan tengd seglskútum og stærri vélbátum sem notaðir eru til skemmtisiglinga ásamt sölu til fyrirtækja í námuvinnslu, fiskeldi, fiskveiðum og öðrum iðnaði.
Velta IRB hefur verið stöðug undanfarin ár og um 1,7 milljónir evra á ári og EBITDA var rúmlega 0,4 milljónir evra á síðasta rekstrarári. Starfsmenn eru 16 talsins.
„Um 30 mínútna akstur í norður er Hampidjan Australia með höfuðstöðvar og samstarf fyrirtækjanna hefur verið náið og vaxandi því Hampidjan hefur útvegað IRB tóg til yfirfléttunar sem framleitt er í Hampidjan Baltic í Litháen,“ segir í tilkynningu Hampiðjunnar.
„Þótt Hampidjan Baltic geti sinnt flestu því sem unnið er hjá IRB þá er flutningstími- og kostnaður of hár til að geta sinnt Ástralska markaðnum á viðunandi hátt hvað varðar afhendingartíma.“
Fyrirhugað er að Hampidjan Australia og IRB verði rekin sem systurfélög næstu árin. Hampiðjan segir samlegðaráhrif vera nokkur og felist í enn nánara samstarfi fyrirtækjanna, hagstæðara verði á hráefnum sem Hampiðjan kaupir inn en mörg hráefnin séu þau sömu og notuð eru í Hampidjan Baltic.
„Kaupin munu einnig styrkja stöðu Hampidjan New Zealand því með þeim opnast nýir möguleikar með aðgengi að framleiðsluvörum IRB.“
„Kaupin á IRB eru mikilvægt skref í að byggja upp enn frekar starfsemi okkar í Ástralíu til að þjóna bæði ástralska og nýsjálenska markaðnum betur því erfitt er að bjóða ásættanlegan afhendingartíma frá Evrópu fyrir fléttað tóg,“ segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.
„IRB mun njóta góðs af rótgrónum mörkuðum okkar og mikilli þekkingu á efnum og framleiðslutækni og á þann hátt gera þeim kleift að vaxa. Við hlökkum til að vinna með hæfu teymi IRB og þökkum eigendunum, Dave og Suzy, fyrir uppbyggilegar og góðar samræður sem við höfum átt í söluferlinu og áframhaldandi stuðning þeirra á komandi mánuðum til að tryggja góð umskipti í rekstrinum.“
„Að byggja upp IRB frá grunni, án viðskiptavina eða birgja þegar við komum til Ástralíu fyrir 20 árum frá Nýja-Sjálandi, hefur verið afar gefandi áskorun. Á þessum tíma höfum við notið þeirrar ánægju að þjálfa mörg ungmenni sem eru að byrja í textíliðnaðinum, auk þess að tryggja frábært samstarf og sambönd við viðskiptavini okkar. Það sem byrjaði sem lítill staðbundinn iðnaður hefur vaxið með árunum og orðið leiðandi í framleiðslu á kápufléttuðum tógum í Ástralíu og víðar,“ er haft eftir Suzy og Dave Allan.
„Við erum himinlifandi með að skilja fyrirtækið okkar og sérstaklega teymið okkar, sem er okkur mjög mikilvægt, eftir í svona hæfum höndum, vitandi að IRB í höndum Hampiðjunnar mun halda áfram að blómstra.”

„Ástralía er langt frá öllu og í gegnum árin höfum við reitt okkur á flugfrakt sem er dýr frá Evrópu og tekur samt of langan tíma í mörgum tilfellum fyrir viðskiptavini okkar. Dave Allan hjá IRB hefur aðstoðað okkur oft með sérstökum fléttum fyrir tógin okkar og færni hans og vilji til að hjálpa hefur verið frábær. Dave hefur þjálfað teymið sitt vel og þau eru nú tilbúin að taka við þegar hann og Suzy hætta störfum,“ segir Þorsteinn Benediktsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar í Ástralíu.