JAE ehf. hefur gengið frá kaupum á Hótel South Coast sem er nýlegt hótel staðsett í miðbæ Selfoss.

Hótel South Coast inniheldur 74 herbergi, veitingaaðstöðu, heilsulind, líkamsræktaraðstöðu og fundarrými. JAE ehf. segir að kaupin styrki stöðu sína verulega á sunnlenska ferðamarkaðnum.

JAE keypti Hótel Selfoss og rekstrarfélag þess á 2,7 milljarða króna í árslok 2022. Félagið keypti einnig Hótel Vestmannaeyjar árið 2022 og festi kaup á fleiri fasteignum í Vestmannaeyjum af Kaldalóni haustið 2023. JAE leigir því einnig út íbúðir og einbýlishús í Vestmannaeyjum.

Með kaupunum á Hótel South Coast nemur heildarfermetrafjöldi fasteigna í eigu félagsins um 16.000 fermetrum. Björgvin Jóhannesson hótelstjóri Hótel Selfoss mun einnig verða hótelsstjóri fyrir Hótel South Coast.

JAE er í 45% eigu fjárfestingarfélagsins 365 hf., sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, 45% eigu M9 ehf. sem er í eigu Aðalsteins Jónssonar Þorsteinssonar, og 10% eigu HT 8 ehf. sem er í eigu hjónanna Einars Þórs Sverrissonar lögmanns og Önnu Jónu Aðalsteinsdóttur.

„Þessi kaup eru í samræmi við trú eigenda á því að ferðaþjónustan á Suðurlandi muni halda áfram að styrkjast á komandi árum,“ segir Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson, einn eigenda. „Við munum áfram leita tækifæra á þessu svæði sem styðja við langtímaáætlanir okkar og vöxt.“