Miðað við miðgildi svara í könnun Seðlabankans á væntingum markaðsaðila gera svarendur ráð fyrir því að stýrivextir Seðlabankans verði óbreyttir í 7,5% það sem eftir lifir árs.
Um er að ræða talsverða breytinga frá síðustu könnun Seðlabankans en þá var talið að vextirnir yrðu lækkaðir í 7,25% á þriðja ársfjórðungi og í 6,75% á þeim fjórða.
Markaðsaðilar gera nú ráð fyrir því að meginvextir taki að lækka aftur á ný í byrjun næsta árs og verði 6,75% eftir eitt ár, eða um 75 punktum lægri en þeir eru í dag. Í tilkynningu á vef Seðlabankans kemur fram að væntingar markaðsaðila um stýrivexti eftir tvö ár séu hins vegar óbreyttar milli kannana í 5,75%.
Seðlabankinn segir niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti lítillega meiri verðbólgu á næstu ársfjórðungum en í síðustu könnun í maí sl. Væntingar þeirra um verðbólgu eftir eitt ár og til lengri tíma voru hins vegar nánast óbreyttar milli kannana.
Miðað við miðgildi svara vænta markaðsaðilar að verðbólga verði 3,4% eftir eitt ár, 3% eftir tvö ár og að meðaltali 3% á næstu fimm og tíu árum.
Þá benda niðurstöðurnar til þess að markaðsaðilar búast við því að gengi krónunnar lækki á næstu misserum og að gengi evru gagnvart krónu verði 145,5 krónur eftir eitt ár.
Hlutfall svarenda sem taldi taumhald peningastefnunnar vera of þétt minnkaði milli kannana og var 43%, samanborið við 64% í síðustu könnun. Um 43% taldi taumhaldið vera hæfilegt samanborið við 36% í maí. Þá taldi 14% svarenda taumhaldið of lítið en enginn taldi það of laust í maíkönnuninni.
Seðlabankinn kannaði væntingar markaðsaðila dagana 11. til 13. ágúst. Leitað var til 37 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör fengust frá 28 aðilum og var svarhlutfallið því 76%.