Sameiginleg móttaka fyrir öll aðildarfélög og aðildarsambönd að Húsi fagfélaganna að Stórhöfða 29-31 var opnuð formlega síðastliðinn föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Að Húsi Fagfélaganna standa, Rafiðnaðarsamband Íslands, VM - Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna, Byggiðn - Félag byggingamanna, Félag iðn- og tæknigreina (FIT), Samiðn - Samband iðnðfélaga og MATVÍS. Formenn þeirra félaga sem eiga aðild að Húsi fagfélaganna klipptu á borða í tilefni dagsins.

Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri hjá Húsi Fagfélaganna:

,„Með þessu skrefi er stigið enn stærra skref til að auka samvinnu í iðnaðarsamfélaginu að Stórhöfða. Markmiðið er að auka enn betur þjónustu við félagsmenn þeirra félaga og sambanda sem eiga aðild að Húsi fagfélaganna. Að sama skapi er þessi aukna samvinna liður í því að tryggja að rödd iðnaðarsamfélagsins heyrist enn frekar í samfélaginu."