Skortstöður með hlutabréf Alvotech hafa margfaldast að umfangi í ár og náðu hæstu hæðum í lok júní síðastliðnum. Samkvæmt nýbirtum tölum Nasdaq minnkuðu fjárfestar aðeins skortstöður sínar á fyrri helmingi júlímánaðar eða um 5%.
Fjöldi skortseldra bréfa Alvotech var um 1,69 milljónir hluta að nafnvirði þann 15. júlí síðastliðinn, samanborið við 1,78 milljónir í lok júnímánaðar. Heildarvirði skortstöðunnar í þann 15. júlí er tæplega 1,9 milljarðar króna miðað við núverandi markaðsgengi.
Dagleg velta með hlutabréf Alvotech jókst talsvert á fyrri helmingi júlímánaðar og var að jafnaði um 335 þúsund hlutir á dag, samanborið við ríflega 200 þúsund í júní.
Miðað við heildarfjölda skortseldra hlutabréfa Alvotech um miðjan júlímánuð hefði það tekið fjárfesta samtals fimm daga til að loka stöðum sínum, út frá svokölluðum „Days to Cover“ mælikvarða.
Hlutabréfaverð Alvotech hefur hækkað um 1,8% frá opnun Kauphallarinnar í morgun og stendur nú í 1.125 krónum á hlut. Gengi félagsins er um 1,4% hærra en í lok júnímánaðar en um 39% lægra en í upphafi árs.
Í þessum mánuði hefur Alvotech greint frá kaupum á allri starfsemi Ivers-Lee, sem er með höfuðstöðvar í Burgdorf í Sviss. Ivers-Lee sérhæfir sig í þjónustu við lyfjaiðnaðinn og hefur áratugareynslu af hágæðasamsetningu og -pökkun lyfja. Degi síðar tilkynnti líftæknifyrirtækið um ráðningu Lindu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs.