Vatnsvirkinn ehf., sem rekur m.a. fagverslun fyrir pípulagningarmenn, hagnaðist um 390 milljónir króna í fyrra, samanborið við 471 milljón árið 2023. Rekstrartekjur námu ríflega 3,3 milljörðum króna og jukust um 250 milljónir milli ára.

Stjórn leggur til að 200 milljónir verði greiddar í arð. Guðni Vilberg Baldursson og Hjalti Már Bjarnason eru eigendur félagsins. Guðni er jafnframt framkvæmdastjóri.

Lykiltölur / Vatnsvirkinn ehf.

2024 2023
Rekstrartekjur 3.342 3.092
Eigið fé 1.276 886
Eignir 1.877 1.498
Afkoma 390 471
- í milljónum króna.

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.