Tekjur Háskóla Íslands námu 36.919 milljörðum króna árið 2024 og jukust um 5% milli ára en þar af námu fjárveitingar ríkissjóðs 24.365 milljónum. Á sama tíma námu gjöld 37.098 milljónum króna og jukust um 3,8% milli ára.
Í ársreikningi kemur fram að afkoma af reglulegri starfsemi hafi verið neikvæð um 179 milljónir króna árið 2024, samanborið við 522 milljóna króna neikvæða afkomu árið 2023.
Fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld námu þó 463 milljónum króna en árið áður námu fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur 502 milljónum króna. Þar af var gengishagnaður upp á 382 milljónir króna í fyrra en árið áður nam gengistap 450 milljónum króna.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði